Meeeeee!
16.07.2006 22:03:11 / Reggí

bææææææj!

mhm. Ég held að ég hætti þessu bara ég er lélegur bloggari hehe. Ég skemmti mér samt konunglega á Hróaskeldu og það verður sko farið aftur. Ég kveð þá bara endanlega héðan oooog þið bara komið í heimsókn til mín ef ykkur leiðist ég er alltaf heima bara..

Já Blés!


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 19:59:51 / Reggí

Semi bara

Jæja Miðikudagur og það þýðir að það eru 5 dagar í Hróaskeldu..

við verðum frá 26. júni til 7. júlí, þannig Helena...þar hefuru það og það þýðir að við náum djammi saman;) verðið þið í köben?

Allavegana ég er bara að vinna og vinna svo ég eigi eitthvern pening í DK, þetta er eitt það helst sem ég hugsa um þessa dagana..

Það er annars bara allt gott að frétta af mér svo sem ég er búin að finna mér nýjann vin og það er trampolínið á Ragnarseli, ég skil ekki af hverju allir segja " já þar sem allir vinir þínir eru " lít ég út fyrir að vera fötluð eða! ;)

En akkurat núna elska ég lífið vil alltaf hafa þetta svona. Sumar, peningar, djamm og æðislegu vinirnir mínir:*

Ég ætla ekkert að hafa þetta mikið lengra núna en ég kem bráðum með eitthvað krassandi.

Ég kveð í bili og heyri í ykkur eftir Hróaskeldu

JÁ BLÉS!

i will miss you


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 16:11:52 / Reggí

úganda úganda !

I know you gonna dig thiz!

ég var að koma úr alveg yndislegri bústaðarferð, ekkert drama og kjaftæði bara fullt af skemmtilegu og furðurlegu fólki...right? hehe;) Emm þetta voru svona sirka : Ég, Vala, Alex, Kristín ownerinn, Helena júl, Helena ýr, Irmý, Elínborg, Móa, Kristín Harðar og eitthver vinur hennar...Síðan hérna fólk sem þið þekkið ekki og ég varla en voru mjög fínt fólk...Atli og Atli hehe já Brittney, Sonja oooog er ég að gleyma eitthverjum? vá hvað við vorum mörg:D

Mér langaði EKKERT að fara heim en við brunuðum í bæinn kl hálf 9 um morguninn til að fara í klippingu ég klippti smá af hárinu ooog litaði það dökkbrúnt. Síðan er Vala bara farin í buttu í viku:( aaaaaaaaaaaaaaaallaleið í Vogana og verður þar í viku hehe já....það eru eitthverjir írar að skemmileggja allt og taka hana í buttu frá mér!

ENÍHÚ!

Ég get ekki beðið eftir að fara á Hróaskeldu, þetta verður lífreinsla og allar sögurnar sem Sara er búin að segja mér síðan í fyrra....þetta verður ýkt gaman..fer út 26. júní með Birgittu svo koma Alexandra og Steinunn 28. Síðan verða stelpurnar mínar þarna...Sara og Harpa og ég held Katrín og Nensí? stelpurnar mínar hehe já ég segi það bara! Síðan verðum við náttúrulega á hróaskeldu í 6 daga eða svo og síðan er ferðinni haldið til Köben og við verðum þar í 5 daga og viti menn við verðum ALLAR á Hotel Löven þá meina ég allar stelpurnar sem ég er búin að nefna hér, weee:D getum kannski hisst í einu herberginu eitthvert kvöldið og sötrað saman?

Æji vá ég get ekki beðið og nenni ekki að bíða ég er bara farin út núna !

JÁ BLÉS!

að borða dorítos 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 14:40:03 / Reggí

HróI!!

Vá þetta tók svooona langann tíma...Ég er að fara á Hróaskeldi! WEEEEE!!:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 14:39:05 / Reggí

hrói?

Ef heppnin verður með mér...er þetta í húfi:

  • Death cab for cutie
  • Deftones
  • Bob Dylan
  • Franz Ferdinand
  • Guns N\' Roses
  • Him
  • Kashmir
  • Matisyahu
  • Placebo
  • Scissor Sisters
  • Sigur rós
  • The streets
  • The Strokes
  • Tool
  • Roger Waters
  • Kanye West

Og svo margt margt maaaaarg fleira...þetta er það sem ég hef hlustað á og fíla eða allavegana flest af þessu, kannski ekki hlustað mikið á allt þetta en okey þetta eru svona þekktustu böndin sem verða þarna. Sara er búin að kynna mig fyrir þó nokkuð af þessum böndum...Sara, "hvað er Franz Ferdinand?" haha manstu í fyrra:$  

Núna krossa ég fingur og bíð eftir svari. No Comment ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 00:58:15 / Reggí

ég nota gel?

Canonball in to the water

mhm það er nú það, þetta er búið að vera yndælis helgi...djammað smá en er þaaaaað ekki bara sjáldsagður hlutur? hélt það hehe

ömm ég og Vala fórum á coco rosie á miðvikudaginn og þær eru alltof góðar! Ég held að tónlistarsmekkurinn minn sé að umtörnast...samt okey ég horfði voða lítið á þær vegna gífurlegs fjölda fólks þarna inni (á Nasa) en það var ýkt gott að hlusta...Við hittum mjög merkiklega mannesku þarna og fengum að taka í hendina á henni....Björk:lol: hún er töff..en okey svo fórum við bara heim Kristín var svo elskulega að bæði skutla okkur og sækja okkur...takk fyrir það:)

Öhm sama dag fékk eg mér tunnels reyndar bara í annað eyrað af því það var gróið fyrir gatið hinumegin þannig það þurfti að skóta aftur, fæ mér þá hinumegin eftir mánuð..þetta var vont! yfirleitt byrjar maður á 1 mm eða 2 en ég byrjaði í 4 mm...á:^)

Einkannirnar mínar fóru ekki vel...verð að gera eitthvað í því en ég ræði það ekkert frekar hér ehe...

Það var samt svo fyndið að sýna mömmu gatið í eyranu...en henni finnst þetta já hehe ekki neitt vooooðalega flott sko en okey...my boddy my will

Byrja að vinna í fyrramálið...hjá Nesprýði, bara ef ykkur langaði eitthvað að fræðast um hvar ég verð að vinna í sumar hehh

MMM!!! hvað er að frétta af mér? já ég er tognuð í löppinni ooog fékk hrífu í andlitið...ég er slösuð:$

en okey ég segi þetta gott í biiiili svona... og krakkar ekki láta svona það er ekkert mál að stimpla inn þennan kóða í kommentum látiði nú heyra í ykkur hérna, ha? nenni ekki að vera að tala við sjálfa mig marr!

JÁ BLÉS!

:haha:

mér líður vel


» 13 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 17:13:26 / Reggí

sko þeeeetter lífið

jæja, eitt próf eftir og allt í gangi.

Það er ekkert smá gott veður úti núna! sit hérna við tölvuna í sundfötum bara ný komin upp úr pottinum..alltof gott! smá brún og sonna fínerí;) En já ég og hún Vala erum að fara að gera dolítið merkilegt á miðvikudaginn, jú núna uppá síðkastið hafa all margir uppgötvað nýja og frábæra tónlistarmenn sem kjósa að kalla sig coco Rosie, franskar stelpur sem eru að gera góða hluti. Og við ætlum að skella okkur á þær á næstkomandi miðvikudag á Nasa:haha: now that will be fun!

Jú svo annað..tunnels. veit eitthver hvað það er ?  ætlað fá  mér svoleiðis :P soldið gaman að segja mömmu frá því en ég held að hún sé samt búin að jafna sig eftir að ég sagði við hana að þetta getur gróið, þetta eru bara svona lítil eða 4mm.

MMM hvað get ég sagt ég hef það bara gott búin að brasa mikið uppá síðkastið og bara mjög glöð og hamingjusöm.

Ég vildi bara svona kasta einu bloggi inn þótt ég eigi eitt próf eftir, félagsfræði103 en svo er það LadyClub partý í kvöld skilst mér, sumarfílingur á stelpunum og verður hittinngurinn hjá Valgerði;).

En ég er farin að fá mér tjúkklíng!

já blés!


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 03:01:00 / Reggí

Byrja aftur

Jæja gott fólk ung dama spurði mig af hverju ég byrji ekki að blogga aftur og ég gaf henni einfalt svar.."spá í því bara" já ég ætla að byrja aftur að blogga...eftir prófin...skrifa eitthvað skemmtilegt hérna, gefa fólki kjánahroll og svoleiðis óþægindi;)

Heyri þá bara í ykkur eftir prófin

JÁ BLÉS

Ragga lifir í ljósum


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 14:38:30 / Reggí

dípressjon

Allir að fá sér lagið Heartstopper með Emilíönnu Torrini.

Og ég er hætt þessu í bili nenni ekki að blogga um ekki neitt lengur

JÁ BLÉS!


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 14:51:11 / Reggí

æji

Nenni ekki að blogga, þarf samt að blogga nenni bara ekki að skrifa mikið en ég þarf að skrifa mikið!


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 19:03:06 / Reggí

?

ok.. hafið þið eitthverntíman kynnst manneskju sem þið endið á að dýrka!....Dýrkið hana það mikið að ykkur langi að vera með henni alltaf...og í þessu tilfelli er ég ekki að tala um að vera hrifin af og vilja vera með eitthverjum, heldur bara bókstaflega að dýrka eitthvern! En í raun þá þorir maður ekki að sýna það of mikið af því þá virkar það svooolítið strange...stalker jafnvel..nei ég var bara að velta þessu fyrir mér:$

eitthver?


» 17 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 16:16:33 / Reggí

Jæja kona finndu sparifötin ég er farin á kvennafar!

People are strange when your a stranger-

Eithhver var að hlusta á þetta oooooog ég fék þetta á heilann eins og allt sem ég heyri. Já þetta er búin að vera alveg ljómandi helgi ég fór að vinna loksins á föstudaginn og var alveg þvílíkt dugleg marr;) vann frá 18:30-07:30 ekki fkn slæmt. Flokka slor allan þennan tíma hjá Héðni kærasta Bryndísar, voða elskulegt af honum að leyfa mér að vinna hjá sér;).

Sem þýðir að ef ég vinn 2 svona vaktir í viðbót þáááá kem ég á hina umtöluðu Hróaskelduhátíð óóóójá!

Laugardagurinn já hann var fínn ég var að passa drengina sem var bara ágætt alltaf gott að vera bara svona einu sinni og einu sinni heima með kútunum, við leigðum okkur mynd við allra barna hæfi sem heytit the pacifier dúndur mynd hehe ég veit samt að Söru á pott þétt eftir að finnast hún leiðinleg og segir svo við mig "þessi mynd er ekta fyrir þig" hehe sé þetta samtal fyrir mér:lol:

Sunnudagurinn fór bara í tjill og síðan uppí leikhús að semja tónlist fyrir blessað leikritið sem er enn ónefnt.

Og svo er það næsta helgi sem ég bíð spennt eftir. Þáááá ætla ég í fyrstaskipti að kíkja á H punktinn í idolpartýið ooog svo á laugardeginum er splashpartý ömm sem gæti bara vel verið að ég mundi kíkja á. Ekki nema Kristín farin í bæinn;) má ég þá koma með:$

Já þá er það komið held ég...svona nett yfirlit og það sem mig langaði að skila frá mér...

Ömm Pabbi skammaði mig um daginn :^) eheee það var gegt óþæginlegt af því hann skammar mig aldrei en svona er þetta, ég tók myndavélina hans til Bryndísar og bara bókstaflega gleymdi henni þar og ég hef ALDREI tekið hana með mér NEITT og AKKURAT núna þurfti hann svona ROSALEGA á henni að halda að það hálfa væri nóg!! jidúddi minn, hann kom inn til mín á þessum fína föstudagsmorgni þar sem ég lá í föstum svefni og ég vaknaði við þetta "RAGNHILDUR HVAR ER MYNDAVÉLIN MÍN!!!!!!!" öhh hún er er hjá Bryndísi "#%#%/#&"&"$(%#$&"%$%!&/(/&%&/(/&%)=)($/#&" VÁ hahahaha brjálaður!

æji já síðan gaf hann mér Hug seinna um kvöldið :P

Jæja mellur !

Kann ekki að setja myndir lengur eithvað bilað þannig ég segi bara....

JÁ  BLÉS!


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 01:27:05 / Reggí

ééééég á mér drauuuuum!

durududu durududu durududu durududu durududu durududu durududu!!!

Já það má segja að ég sé með þetta á heilanum! Ég Alex og Bjössi vorum nefnilega að semja rosalega flott lag að mínu mati, smá pússerí eftir en það kemur allt með tímanum:lol:

En að öðru..Þemadagarnir eru að hefjast ogég get ekki sagt annað en mig hlakki svolítt til...Við úr dansinum verðum með eftirhermu af Til Hamingju Ísland Með Silvíu Night það er tremma töff;) Eða mér finnst það:D...Ég er bakrödd með Alex, Irmý og Páli Óskari (ekki sá eini sanni) og síðan eitthverjar píjur að dansa með Guðlaugu AkA Silvíu Nótt. ´Fáum netta hárgreiðslu og sonna fínerí! aaaaany ways!

Svo er það náttúrulega leikritið, skólaleikritið sem verður frumsýnt annaðhvort 16. eða 17. mars! man ekki hvorn daginn og það er óóóógeðslega gaman að leika í þessu leikriti hehe rosa rosa! Soldið steikt en i like it, þið mætið síðan öll og hafið ógeðslega gaman og sonna:)

Já eitthvað meira sem ég þarf að segja? ömm ég á bráðum afmæli 21. okt sko alveg að koma að þessu:$

Öhh já í fyrradag vakti ég í 33 tíma sem ég tel NOKKUÐ mikið! ég var nefnilega búin að sofa svo mikið seinustu viku skohh:)

Mig langar í TacoBell mafagga!

Vitiði kl er að  verða hálf 2 og ég er farin að sofa mér!

Helvítis Gardínur að skella svona fyrir aftan mig

Samt eiginlega marmelaðigrauturinn var betri, af því Finnur var svo leiðinlegur við tófuna sem tinni átti, samt eiginlega skemmtilegur við húnavatshumarinn sem var grillaður á öskudaginn, nei ég veit það ekki...eða jú held það samt...eða bara kannski?

já blés!


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 20:03:24 / Reggí

Skerum kokið á okkur það er svo gaman!

Eitt skal ég nú segja ykkur,

hvað þar fór á stjá.

Stór og mikill streptakokkur,

Sem er mig að hrjá!

Já krakkar mínir þið heyrðuð rétt, ég er með streptakokkasýkingu (í hálsinum) ef þið vitið ekki hvar hún sest. Jú ég er ekki búin að mæta í skólann síðan á mánudaginn enda má ég það ekki þar sem þetta er víst smitandi og það síðasta sem ég vill gera er að smita ykkur af þessum horbjóði! Þetta er ógeðslegt helvíti!!...smá lýsing hérna:

Streptakokkar

Þetta er sýking sem sest í hálsinn og myndar dingul sem lokar næstum fyrir kokið. hinumegin er sár með hvítum gröft í. Þetta hrjáir mann þannig að við hvern munnvatsdropa sem maður kyngir langar manni hels til að deyja, það er jafnvont og að stinga hníf niðrí kok. Streptakokkar eru smitandi og mæli ég ekki með að neinn komist í snertingu við mig fyrr en á sunnudaginn þá er þetta magnaða lyf Kåvepenin búið að drepa veiruna! JESS!!

Já þar hafiði það...ekkert óóóóógeðslega geðslegt!

Ég er sem sagt bara búin að vera heima lyggjandi uppí rúmi að gera nákvæmlega ekki neitt. Sem er ekkert voðalega gaman. Langar miklu frekar að mæta á leikhúsæfingu og í skólann að hitta alla og höhöhö læra höhö...já mikið frekar

Seinust helgi fór ég á þorrablót. Ég skal sko segja ykkur það að þetta var miiiklu skemmtilegra en ég bjóst við. MIKLU...ég skemmti mér betur þarna en á sumum skólaböllum sem eru ný yyyyfirleitt bara nokkuð skemmtileg...Það voru skemmtiatriði sem stóðu sko undir sínum orðum, þau voru ýkt skemmtileg svona sveitahúmor;) Síðan var borðað þennan ágætis mat. Þá meina ég allt sem var ekki súrt var bara mjög gott sem var t.d hangikjöt, harðfiskur, flatkökur og eitthver pottréttur veit nú ekki hvaðan hann kom ekkert þorralegt við hann hehe..ömm síða var þetta ágæta dansiball á eftir mjöööööög kemmtilegt kynntist fullt af fólki og sonna:lol:

Já síðan kom ég heim á sunnudeginum og ég vildi nú ekki láta hann far til spillis þannig ég fór í bíó í bænum með Bryndísi og Héðni á Walk the Line, sem er btw geggjuð! Johnny Cash er magnaður tónlista maður og ég mæli eindregið með að allir sjái þessa mynd.

En já þá held ég að þetta sé komið gott í bili

Takk fyrir mig:haha:

Drekakjöt

*Nýtt* skoðunarkönnun, koma svo taka þátt!!


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 15:52:44 / Reggí

meeeee!!

Sveitin sveitin yndislega sveitin 8)

okey sko....mér er allveg sama hvað sumum finnst en mér finnst bara töff að fíla rollur... ég hef gaman að því að fíflast í þeim og með þeim...fór oft að tala við þær þegar mér leyddist eheee...og hérna eru nokkrir gullmolar sem eru hressandi!

Frægasta sagan er náttúrulega af henni Lokbrá blessuð sé minning hennar, sem ég átti...jú það var þannig að við vorum að rígja (klippa ullina af þeim ef þetta var of lúðalegt orð fyrir þig) og ég var svona töluvert ný búin að ná tökum á þessu og hérna ég vildi nú gera gibbunni minni greiða og prufa að klippa hana sjálf...okey, allt er í sómanum, búin að klippa á hana svaka dú og fínerí þar til hún fer að sprikkla og tekur bara eitthvaða kast!...hún jarmaði og sprikklaði eins og fáviti og ég bara hvern andskotinn er að! okey ég klippti í hana:^).uuuu....eheee..sorry:$...og dagin eftir dó hún... held samt að hún hafi verið smá veik en ég sagði engum frá því að ég hafi klipt í hana af því ég vildi ekki vera skömmuð...ehee...úpz

Annað sko vá horn á kindum eru viðkvæm....hehe ég ætlaði að grípa í hornin á einni rollu og þau bara duttu af:$ ehhh....halló!

Okey hver skírir rollur barbírós og jebbakerru jújú það eru nöfnin á 2 gibbum uppí sveit..

Ömm vissuði að það er silikon í ullini á kindunum til að kasta frá bleytu.

Ég náði einu sinni í lamb inní kind...oj

Gemsar, kallast eins árs gamalar rollur eða þær sem hafa aldrei eignast lamb...merkilegt? jaaaajá!

sko þetta blogg skuldaði ég...here you go;)....og ég er ekki lúði spurðu bara hundinn sem bríndi sverðið fyrir Gunnar Öxnadalsskáld....nááááákvæmlega!

Síðan mæli ég með að allir fari á www.fm957.is og hlusti á síma hrekk í zúper sem heytir sunna osk 2...ég fer einu sinni og einu sinni á þessa síðu til að hlusta á hrekkina...og þetta er fyndið...múhaha!

Já blés!:haha:

Ein fjöður getur gert mann ríkann!


» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3